Rekum Gylfa strax

Punktar

Kominn tími til byltingar. Gylfi Magnússon bankaráðherra hótar börnum okkar öllu illu. Þau kunna að þurfa að borga gjöf Hæstaréttar til skuldara, segir hann. Kemur ekki til greina. Hann skortir umboð til að skuldbinda þjóðina næstu áratugi. Við þurfum að hrekja hann frá völdum. Svo og ríkisstjórnina alla, ef hún styður ruglið í honum. Þjóðin tekur ekki við neinum reikningi frá Gylfa Magnússyni. Hann er búinn að skandalísera nóg í embætti. Hefur séð um, að bankarnir eru núna jafn spilltir og þeir voru fyrir hrun. Losum okkur líka við ríkisstjórn, sem hatar börnin og elskar bara banka og bankstera.