Hjálpi oss Evrópusambandið

Punktar

Ef við rekum fíflin frá völdum, koma glæpamennirnir inn aftur. Hvenær sem þjóðin má velja, tekur hún ranga ákvörðun. Um IceSave, um Bezta flokkinn. Hún mun hleypa hrunverjum Flokksins til valda, þegar fífl núverandi stjórnar eru búin að ganga fram af henni. Fiflin og glæpamennirnir koma og fara, en embættismennirnir og bankaræningjarnir blífa. Alls staðar eru lagatæknar, bókhaldstæknar og excel-tæknar. Til að bjarga vonlausri þjóð er nauðsynlegt að kalla í Evrópusambandið. Aðild að sambandinu er eina leiðin til að halda Íslandi byggilegu í trássi við þjóðina. Sem ævinlega tekur ranga ákvörðun.