Morgunblaðið er miður sín út af auglýsingum Haga í Fréttablaðinu. Grætur á nánast hverjum degi. Blaðið grét ekki á velmektarárum Kolkrabbans. Þá gættu stórfyrirtækin þess, að Morgunblaðið eitt fengi allar auglýsingar. Nú er öldin önnur, Mogginn er orðinn að fyrirlitnu málgagni róttæka kantsins í Sjálfstæðisflokknum. Verður nú að bergja þann beizka bikar, sem það bauð öðrum dagblöðum á fyrri áratugum. Röksemd auglýsenda er núna hin sama og áður. “Snertiverð” auglýsinga er hagstæðara í víðlesnum fréttablöðum en í sérhæfðum málgögnum. Auglýsingar dragast að stóru upplagi, ekki að Davíð.