Jón Gnarr sýndi strax, að Besti flokkurinn er eins og fjórflokkurinn. Réði almennings-pískara í Orkuveituna. Getum því hér eftir talað um fimmflokkinn. Til hamingju, fávitar, sem kusuð Gnarrinn. Áður voru Samfylkingin og Vinstri græn búin að sanna, að þau eru hluti fjórflokksins, sem nú er fimmflokkur. Hafa ráðið marga tugi flokksómaga í ýmis opinber embætti á aðeins hálfu öðru ári. Eru eins spillt og Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn. Raunar L-listinn á Akureyri líka. Allir taka sérhagsmuni fram yfir almannahag. Því meira, sem hlutirnir breytast, því meira eru þeir eins. Erum vita vonlausir kjósendur.