Björgólfur Thor Björgólfsson níðir minningu langafa síns með endurteknu rugli í fjölmiðlum. Er ábyrgur fyrir hruni Landsbankans, því að bankastjórar hans skófu bankann að innan til að útvega fé handa honum. Mikið af hruninu er á kostnað íslenzkra skattgreiðenda. Að svo miklu leyti sem ríkið þurfti og þarf að punga út til að koma endurreistum Landsbanka á flot og halda honum á floti. Að svo miklu leyti sem ríkið þarf að greiða fyrir IceSave. Björgólfur Thor er einn af mestu skúrkum landsins. Yfirlýsingar hans um endurgreiðslur eru hlægilegt aumingjagrobb. Björgólfur Thor, þú ert enginn Thor Jensen.