Verra en Bandaríkin

Punktar

Samkvæmt lekanum frá stríðinu í Afganistan lýgur Atlantshafsbandalagið meira en Bandaríkin. Þau gera meira af því að fegra hlutina, en bandalagið lætur staðreyndir ekki trufla sig hið minnsta. Kemur mér ekki á óvart sem félaga í samtökum vestrænna ritstjóra, International Press Institute. Þau upplýstu um lygar Atlantshafsbandalagsns í Kosovo-stríðinu. Útkoman birtist í bókarformi árið 1999. Furðuleg lesning. Kræfastur var blaðurfulltrúinn, Jamie Patrick Shea, sem aldrei sagði satt orð. Hann er enn hátt skrifaður í bandalaginu. Hefð er í Atlantshafsbandalaginu að skálda upp tæra óra um aðgerðir þess.