Vil gjarna forðast vörur frá Ísrael. Vil, að þær séu merktar sem slíkar. Ríkið verndar mig ekki á þessu sviði. Vil, að annað hvort Bónus eða Krónan auglýsti sig hreina af slíkri vöru. Mundi skipta við þá keðju og ekki við hina. Vil líka gjarna forðast matvæli úr erfðabreyttu hráefni. Vil, að þær séu merktar sem slíkar. Ríkið verndar mig ekki á þessu sviði. Allra sízt gerir Jón Bjarnason ráðherra það. Hann styður eingöngu sérhagsmuni, hann er flaggskip Vinstri grænna. Merkingar á vöru eiga að hjálpa neytenda að taka ákvörðun miðað við hans óskir. Ríkið á ekki að leyfa leyndarhjúp á vörum.