Hákarlinn Ross Beaty segist á mörkum þess að hætta við brask sitt á Íslandi. Gott að heyra. Þyrftum annars að kanna feril hans og illa meðferð námumanna í Suður-Ameríku. Svo og ýmsar skúffur að baki skúffu í Kanada, sem á skúffu í Svíþjóð. Kannski leynast útrásarvíkingar einhvers staðar í skúffu. Þyrftum annars að rannsaka brask hans með aflandskrónur og ýmsa málamyndagerninga. Þyrftum annars að rannsaka rugl með lánakjör og kúlulán. Og svo þurfum við almennt að smíða reglur um samskipti við auralausa hræfugla. Við fáum frekar erlenda fjármögnun, ef við erum skynsöm og segjum bara: Far vel Ross Beaty.