Nöfn níu hrunverja vantar

Punktar

Níu endurskoðendur KPMG og PWC eru lykilmenn hrunverja. Níu bókhaldstæknar hjá KlynveldPeatMainGördeler og PriceWaterhouseCoopers bjuggu til spilaborg stóru bankanna þriggja, Landsbankans, Kaupþings og Glitnis. Skrifuðu undir reikninga, sem voru langt út af siðferðiskortinu, hvað sem lagatækni segir. Skrifuðu upp á ævintýralegt rugl í svokallaðri viðskiptavild, sem í raun var einskis virði. Þessir níu bókhaldstæknar eru enn við völd hjá KPMG og PWC eins og ekkert hafi í skorizt. Eru jafnvel í stjórn félags bókhaldstækna (afsakið, félags endurskoðenda). Hverjir eru þessir níu lykilmenn hrunsins?