Löggan er ofbeldishneigð

Punktar

Björgvin Björgvinsson hjá kynferðisbrotadeild löggunnar er óhæfur í starfi. Telur nauðganir vera eins konar náttúrulögmál, sem konur geti forðast með því að vera ekki drukknar og dópaðar. Í gamla daga var því bætt við, að konur væru í of ögrandi pilsum, en Björgvin gleymdi því. Almennt er löggan óhæf til starfa í nútíma lýðræðisríki. Heimtar hærra kaup og meiri vopn og forvirkar aðgerðir. Ræðst í níu löggubílum á eiganda sumarhúss í Kjósinni og þrjá geti hans. Það er forsmekkur að forvirkum aðgerðum löggunnar. Réðst líka á konu með brauðmola við stjórnarráðshúsið. Löggan er ofbeldishneigð.