Hver baðst afsökunar?

Punktar

Hver hefur beðið þjóðina afsökunar á vanrækslu sinni, lygi sinni, ábyrgð sinni á hruninu? Ekki Davíð Oddsson. Ekki Geir H. Haarde. Ekki Ingibjörg Sólrún. Enginn bankastjóri, enginn fjárglæframaður. Ekki ráðherrarnir Þorgerður Katrín, Guðlaugur Þór og Össur Skarphéðinsson. Ekki morfís-froðusnakkarnir Birgir Ármannsson og Sigurður Kári Kristjánsson. Allt þetta lið hefur gleymt, að heimurinn var til fyrir árið 2009. Margir þessara pólitíkusa halda fram, að eymd Íslands sé núverandi ríkisstjórn að kenna. Að svo miklu leyti sem þjóðin fellst á það rugl er Íslandi ekki við bjargandi.