Þau skulda mér líka

Punktar

Ég skuldaði ekkert í hruninu, tapaði engu á gengistjóni lána eða verðbólgu höfuðstóls. Tapaði samt eins og aðrir. Mestu tapaði ég á hruni krónu og fasteignaverðs. Þær góðu tekjur, sem ég hafði, rýrnuðu við hrunið. Geri ráð fyrir, að hálft hrunið hafi verið leiðrétting á bólu og hálft hrunið hafi verið tjón. Sá helmingur kostar mig 150.000 krónur á mánuði. Þar er fyrst og fremst um að kenna Davíð Oddssyni, dýrasta manni Íslandssögunnar. Líka Geir Haarde hinum sofandi. Svo og Ingibjörgu Sólrúnu, sem æsti til umsvifa banka í útlöndum. Léku alla þjóðina grátt. Voru brennuvargar, engir leiksoppar.