Einfalt er að bjóða sig fram til stjórnlagaþings. Þú ferð á www.kosning.is og prentar út undirskriftalista. Ferð með hann milli kunningja og ættingja og færð meðmæli þrjátíu manna. Passaðu að hafa einhvern með þér, því að oft eru bara tveir heima. Þá vantar annað vitnið, nema þú komir með það með þér. Því fyrr sem þú safnar, þeim mun minni líkur eru á, að framboð þitt rekist á framboð annarra í nöfnum meðmælenda. Svo þarftu stafræna mynd af þér og stuttan tölvutexta um, hversu brýnt sé að kjósa þig. Ég reikna með, að mynd og texti fari í bækling frá landskjörstjórn. Annað þarf ekki, gangi þér vel.