Leggja niður hjartaþræðingar

Punktar

Við stöndum andspænis því að þurfa að skera niður heilsuþjónustu. Hætta að veita þjónustu gegn dýrum sjúkdómum. Við höfum ekki lengur ráð á norrænni velferð. Fólk neitar að horfast í augu við þessa staðreynd. Næsta skref gæti verið að leggja niður hjartaþræðingar. Áður en kemur að skipun siðanefndar um afnám dýrrar meðferðar þarf að minnka við Húsavík og Keflavík. Sjúkrahús, sem rekin eru að hætti atvinnubótavinnu í héraði eiga engan rétt á sér. Keflavík er nálægt Reykjavík og Húsavík er nálægt Akureyri. Við stöndum í brunarústum hrunsins og ábyrgðarlausa þjóðin æpir samt í einum kór: Ekki ég.