Afleitt er betra en Ísland

Punktar

Evrópusambandið er afleitt. Sum gagnrýni andstæðinga aðildar á rétt á sér. Samt er það hreint himnaríki í samanburði við þá skelfingu, sem Ísland er. Okkur hefur frá upphafi sjálfstæðis verið stjórnað af fáráðlingum. Geir var verstur og Davíð langsamlega dýrastur. Kjósendur hafa margsýnt, að þeir eru ófærir um að reka lýðræði. Því meiri afskipti, sem afleit Evrópa hefur af okkur, þeim mun betra. Því miður verðum við ekki aðilar vegna þjóðrembu. En aðlögunarferlið sjálft er frábært. Bezt væri, ef tækist að hreinsa eindregnu hagsmunasamtökin, sem kölluð eru landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti.