Af viðtölum fjölmiðla í vikunni við Jónínu Benediktsdóttur að dæma er hún harla siðblind. Stundaði fjárkúgun í fjármálaheiminum og fékk skuldir sínar afskrifaðar. Að mínu viti eru játningar hennar sakamál, sem saksóknari þarf að taka upp þegar í stað. Þótt Jónína hafi vafalaust gerzt fremur kristileg með aldrinum, hefur ekki fylgt nein siðvæðing. Enda er að mínu viti harla sambandslítið milli kristni og siðgæðis. Ég tók eftir málefnalegri grein þekkts heimilislæknis um stólpípu-bisness hennar. Ofsafengin árás hennar á persónu læknisins sannfæra mig um, að hún sé enn við sama heygarðshornið.