Sjálfstæðisflokkurinn er við völd

Punktar

Erfiðustu deilur stjórnmálanna snúast um einfalda hluti. IceSave snýst um þetta: Hvenær verða óþægindi Sjálfstæðisflokksins vegna tjóns fyrirtækja meiri en Þórðargleði hans af vandræðum ríkisstjórnarinnar? Afsláttur af skuldum hátekjufólks snýst um þetta: Hvenær verða óþægindi Flokksins af stuðningi við óráðsíufólk meiri en Þórðargleði þeirra af vandræðum ríkisstjórnarinnar? Hvort tveggja er tímaspursmál. Hin pólitísku læti halda áfram, unz Sjálfstæðisflokkurinn sér hagsmunum sínum betur borgið með því að leiðrétta kúrsinn. Hvenær, veit ég ekki. En Flokkurinn er raunar við völd.