Vörn Brynjars er hafin

Punktar

Brynjar Níelsson lagatæknir þreytist ekki á að koma mér á óvart. Nú skrifar hann grein um, að þyngri refsingar beri keim af hefnd. Rétt eins og fólk sé að heimta meiri refsingar en áður. Hef ekki orðið var við þá kröfu. Geri samt ráð fyrir, að fólk vilji, að fjárglæframenn fái hlutfallsega sömu dóma og þeir sem stela ölkippu. Fái til dæmis hundrað ára fangelsi fyrir hvern milljarð, sem þeir stálu. Það er ekki krafa um þyngri refsingu af völdum reiði eða hefndar. Bara krafa um, að Armaní-klæddu bófarnir, sem Brynjar mun verja, fái ekki hlutfallslega vægari dóma en venjulegir bjórkippuþjófar.