Löggan í lamasessi

Punktar

Skil ekki, hvers vegna löggan hlýddi fyrirmælum bandaríska sendiráðsins. Hún skrifaði niður nafn og númer blaðamanna við mótmælin hjá sendiráðinu. Skildi aldrei, hvers vegna löggan hlýddi fyrirmælum öryggisvarða Impregilio við Kárahnjúka. Fyrir það varð íslenzka löggan fræg erlendis fyrir lífshættulegt ofbeldi. Kom fram í bók Mark Kennedy löggunjósnara. Skil ekki, hvers vegna löggan þrengir sífellt að almenningi og heimtar rafbyssur og skriðdrekabíla. Skil ekki, hvers vegna efnahagsbrotadeildin gefst upp á málum gegn bófum. Skil ekki fulla rútu af löggum fyrir utan réttarhöld níumenninganna í gær.