Of snemma fagnað

Punktar

Of snemmt er að fagna afsögn Hosni Mubarak. Þjófurinn er farinn en sá er verri, sem tekur við, pyndingastjóri leyniþjónustunnar. Omar Suleiman veit ekkert um, hvað þjóðin vill. Egyptar verða áfram að mótmæla á götum úti, ef þeir vilja lýðræði og framfarir. Þeir þurfa að heimta landa sína úr fangelsi og pyntingaklefum. Þurfa að losna við herinn úr ráðherrastólum. Þurfa að afnema prósentur ríkisþjófa af öllum samningum. Og einkum þurfa þeir að losna úr faðmlagi ríkisins við Ísrael og Bandaríkin. Egypzka byltingin er rétt að byrja. Enn er útilokað að sjá, hvort hún lukkast eða hrynur.