Nýr fylgismaður gegnsæis

Punktar

Kári Stefánsson tekur í Mogga undir með okkur fylgismönnum gegnsæis. Ég hef lengi hamrað á, að skortur á gegnsæi er enn helzti veikleiki samfélagsins. Hann lýsir sér einkum í bankaleynd, en einnig í annarri leynd yfir fjármálum fólks og fyrirtækja. Þar á meðal Eiðs Smára Guðjohnsen útrásarbraskara, sem veldur Kópavogi stórtjóni. Og einnig yfir gerðum og samningum stjórnvalda. Við þurfum að afnema bankaleynd, leynd yfir fjármálagerningum og leynd yfir stjórnsýslunni. Því miður hafa fulltrúar á afsköffuðu stjórnlagaþingi ekki áttað sig á þessu. Afnám leyndar er brýnasti þáttur endurreisnar Íslands.