Margir eru meðteknir af að bera enga ábyrgð á fjárglæfrum einkafyrirtækja í útlöndum. Hafa samt verið með pólitíska umboðsmenn á Alþingi og ríkisstjórn. Umbarnir hafa frá upphafi samþykkt að borga IceSave, þótt rifizt hafi verið um vexti. Vissulega bera menn misjafna ábyrgð á umbunum. Vegna Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur bera framsóknarmenn mikla ábyrgð. Vegna Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur ber samfylkingarfólk nokkra ábyrgð. Þeir, sem kusu Flokkinn og kjósa hann enn bera mesta ábyrgð. Geta ekki kosið um að losna við ábyrgð á tjóninu. Þeir ættu raunar að borga allt IceSave.