Fleiri slagorð og stóryrði

Punktar

Andstaðan við IceSave er ekki þess eðlis, að hún muni þiðna í skoðanaskiptum eða fortölum fróðra manna. Mikill hluti andstæðinga samningsins vill alls ekki borga. Engu máli skiptir, hvað í boði er. Þeir munu fella hvaða plagg, sem er. Umræðunni um IceSave er í rauninni lokið. Eftir eru bara slagorð og stóryrði. Alþingi verður að vísu að upplýsa almenning um leyniskjöl, sem fjárlaganefnd þingsins mátti ein sjá. En það er bara formsatriði, skjöl munu ekki breyta afstöðu fólks, sem æpir: Við borgum ekki. Því verður hér enginn friður til rökræðna. Þjóðrembingar og ábyrgðarleysingjar berja bara bumbur.