Mjög mikilvægir öreigar

Punktar

Gallinn við MMM, mjög mikilvægar manneskjur, er að þær finnast ekki hér. VIP er í skemmtilegum tímaritum í stíl við Séð og heyrt. Hello og önnur brýn rit skrifa um fólk, sem veður í peningum. Leikarar og söngvarar eru hluti af því liði, sem telur sig vera VIP. Hér á landi hefur Séð og heyrt orðið að sæta því að skrifa um leikara og söngvara, sem eiga ekki bót fyrir rassinn á sér. Þegar haldnar eru veizlur fyrir VIP eins og til dæmis Eddan, þá á hálfur salurinn ekki fyrir næsta glasi. Þess vegna virkar VIP svo hlægilega hér á landi. Öreigar rembast við að skálda það upp, sem er þó ekta í útlandinu.