Fokið er í flest skjól sauðfjárræktar, þegar fleira fólk en fénaður er í réttunum á haustin. Fokið er í flest skjól tunnumótmæla, þegar fleiri tunnur eru á Austurvelli en fólkið, sem lemur þær. Tímabili ábyrgðarleysis er lokið og Jón Valur Jensson hrópar einn á Austurvelli. Andstaðan við IceSave var glannalegasta mynd siðleysis og ábyrgðarleysis þjóðarinnar. Hún lét alls konar ógeð sjóða í pottum landsins. Mótmælti eingöngu því, sem kom frá hinum hötuðu útlendingum. Frá hollenzkum og brezkum kerlingum og einkum þó frá Evrópusambandinu. Þessu ábyrgðarleysi og siðleysi okkar er núna að linna.