Við afhendingu Óskarsverðlauna í gær var vakin athygli á sorglegri staðreynd Íslandshrunsins: Enginn hefur enn verið dæmdur í fangelsi fyrir aðild sína að algeru hruni íslenzka bankakerfisins. Samt er vitað um botnlausa glæpi yfirmanna banka, eigenda banka og gæludýra banka. Málin hrannast upp hjá sérstökum saksóknara, en engin ákæra hefur verið gefin út. Auðvitað er það ekki boðlegt, þótt menn séu fullir af vilja til að trúa saksóknaranum. Við erum orðin illræmd. Ekki bara fyrir að neita að borga skuldir, þrátt fyrir loforð. Heldur líka fyrir að slá skjaldborg um verstu bófa þjóðarsögunnar.