Líbýa: Kort og tímavefur

Punktar

Guardian hefur reynzt mér góð heimild um borgarastríðið í Líbýu. Þar birtist tímavefur um atburði og fréttir í réttri röð og ágætt kort af átakasvæðunum. Í stórum dráttum sýnir kortið þráteflið. Uppreisnarmenn halda bæjum, sem þeir höfðu náð á sitt vald, nema Bin Jawad á miðri ströndinni. Á svipuðum slóðum hafa uppreisnarmenn náð Ras Lanuf aftur á sitt vald. Gaddafi heldur enn Sirte á miðri ströndinni, svo og Tripoli og nokkrum bæjum kringum höfuðborgina.