IceSave var ekki framið í limbói bófanna. Glæpurinn var með vitund og vilja löglega kjörinna fulltrúa þjóðarinnar á þeim tíma. Við höfum nú loksins fengið góðan samning um IceSave, sem kostar bara brot af gjaldþroti banka og Seðlabankans. Siðferðislega rétt er að segja já við honum. Við þurfum að ná aftur reisn í samskiptum við útlönd. Við gerum það með því að segja já. Þar á ofan er já hagkvæmt í samskiptum við útlandið. Komumst aftur í eðlilegt samstarf um fjármál. Fáum fé að láni til að halda áfram að virkja orku. Allt er frosið eins og er og það byrjar fyrst að þiðna, þegar við höfum sagt já.