Þegar ríkið hyggst spreða alls 50 milljörðum í Íbúðalánasjóð, er hann orðinn stærri vandi en IceSave. Samt segja fáir: Við borgum ekki. Ríkið spreðaði nærri 100 milljörðum í sparisjóði og tryggingafélög. Samt sögðu fáir: Við borgum ekki skuldir óreiðumanna. Geir og Ingibjörg spreðuðu 300 milljörðum í endurreisn gjaldþrota viðskiptabanka. Samt sögðu fáir: Þetta er aflátsbréf fyrir bófana, sem eiga að borga. Davíð og Geir spreðuðu 300 milljörðum í gjaldþrota Seðlabanka. Samt sögðu fáir: Þetta kemur mér ekki við. Menn láta sér fátt um finnast um ofur-upphæðirnar. En brjálast yfir skiptimyntinni.