Bera einir alla ábyrgð

Punktar

Þótt pokapresturinn Terry Jones í Florida brenni kóraninn, er ekki honum að kenna, að múslimar drepi fólk. Bókabrenna er bara aulaskapur og manndráp eru allt annað. Ef talíbanar tryllast vegna bókabrennu og drepa þrjátíu manns, er það þeim einum að kenna. Annars gæti Hitler sagt, að heimstyrjöldin hafi verið Pólverjum að kenna, því þeir neituðu að fallast á kröfur hans. Fólk, sem fremur glæpi, ber sjálft ábyrgð á þeim. Ekki þeir, sem hugsanlega hafa reitt bófana til reiði. Því er rangt að segja í fréttum, að gerningur Terry Jones hafi kostað þrjátíu manns lífið. Talíbanar bera einir alla ábyrgð.