Magnað afrek hrunstjórans

Punktar

Meirihlutinn segir ekki bara nei við IceSave samningi. Hann segir líka nei við ríkisstjórn og stjórnarsamstarfi. Hún riðar því til falls. Meirihlutinn segir líka nei við Bjarna Benediktssyni. Hann riðar því til falls. Eftir þingkosningar í sumar tekur Sjálfstæðisflokkurinn við völdum með 40% fylgi þjóðarinnar og myndar nei-stjórn með Framsókn. Flokkurinn verður þá undir nýjum formanni, samþykktum og smurðum af heilögum Davíð Oddssyni, leiðtoga lífs okkar. Magnað afrek sjálfs hrunstjórans. Missti völdin eftir Davíðshrun og verður samt aftursætis-bílstjóri Flokksins á 3ja ára afmæli hrunsins.