Fangelsum nýju banksterana

Punktar

Skylda þarf banka til jafnræðis milli viðskiptavina. Eiga til dæmis ekki að mega láta bófa hafa betri kjör en almenning. Sem þeir þó gera, samanber N1. Afskrifi þeir hjá bófum, geta þeir afskrifað jafnt hjá almenningi. Geri þeir bófum kleift að eignast fyrirtækin aftur, geta þeir leyft almenningi að eignast íbúðirnar aftur. Hjálpi þeir bófum að hafa kennitöluskipti, geta þeir tekið almenning af vanskilaskrá eftir gjaldþrot. Allt er þetta á gráu svæði. En grundvallarkrafa er, að bófar fái enga lúxusmeðferð umfram fólk. Viðurlög við slíkum brotum ættu að varða sektum og fangavist banksteranna.