Sannir Íslendingar vildu ekki borga erlendar skuldir óreiðumanna. Bara innlendar skuldir. Segjast ekki bera ábyrgð á hruninu. Víkja sér ætíð undan ábyrgð. Samt kusu þeir markvisst flokka og menn, sem ræktuðu jarðveg hruns. Kusu Davíð, sem innleiddi eftirlitslausa einkavæðingu. Sem kom sér upp eigin gælubanka, er bjó til IceSave. Kjósendur kusu líka flokka, sem studdu Davíð í ruglinu. Kjósendur bera ábyrgð á stefnu Davíðs sem forsætis og seðlabanka og svo skipbroti hennar. Bera því ábyrgð á erlendum skuldum óreiðumanna sem og innlendum. Sannir Íslendingar eru aumingjar á flótta undan veruleikanum.