Sætti Samtök atvinnulífsins sig við kvótatexta ríkisstjórnarinnar, má bóka, að textinn er út í hött. Þjóðin sættir sig ekki við grautargerð í sátt við kvótagreifa, sem veðsettu þjóðareignina. Lengi hefur verið ljóst, að kvótinn verður ekki leystur með sátt milli hagsmuna. Nýrri skipan verður eingöngu troðið ofan í kok kvótagreifa og umboðsmanna þeirra. Svokölluð sáttanefnd Jóns Bjarnasonar landbúnaðar var rugl frá upphafi. Ríkisstjórnin hefur með sáttaferli klúðrað möguleikum sínum á að verða við þjóðarviljanum. Róttæk breyting á stjórnarskrá er eina lausnin. Ríkisstjórnin hefur svikið þjóðina.