Innvígða forréttindaliðið

Punktar

Íhaldskerlingar í Þingvallanefnd vildu ekki valinkunnan Andra Snæ Magnason í dómnefnd um teikningar. Töldu hann of umdeildan og er það í fyrsta skipti, sem ég heyri slíkt. Líklega lifa þær í öðrum heimi en ég. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er hins vegar umdeild og ætti ekki að fá að sitja í nefndinni. Hún er kúlulánadrottning, sem ætti að skila þjóðinni fé í stað þess að rífa kjaft. Ragnheiður Elín Árnadóttir ætti ekki heldur að sitja í nefndinni og raunar enginn úr Flokknum. Svo grátt hafa þingmenn hans leikið Þingvelli um áratugi. Í endalausri þjónkun við innvígt forréttindalið með sumarbústaði.