Ástæða er til að staldra við, þegar Styrmir Gunnarsson lofar umhverfismál og Davíð Oddsson lofar dýravernd. Eitthvað er þar á seyði. Þeir félagar stýrðu í tvo áratugi afar ógeðfelldri pólitík. Hún hafði margar hliðar, ekki bara eftirlitslausa einkavinavæðingu. Bláa höndin terroriseraði samfélagið svo mjög, að fólk þorði ekki að malda í móinn. Þeir slettu smjörklípum í allar áttir og slógu með reglustriku á putta. Svo kom hrunið og þeir félagar hefðu átt að skolast á öskuhauga samfélagsins. En í staðinn rísa þeir upp nýir og endurfæddir sem hægri grænir. Varið ykkur á gömlum jálkum í nýju dulargervi.