Holdgervingur hins illa

Punktar

Persónuvernd bannar sameiginlega skrá yfir útgáfu lyfseðla. Vill ekki, að komið verði upp um dóplækna og þá, sem moka til sín læknadópi. Stofnunin er andvíg öllu góðu í samfélaginu. Andvíg eftirlitsmyndavélum, sem fanga bófa. Reynir að hefta rannsókn á gjaldeyrisbraski ofurbófa. Telur kennitölu mína vera leyndarmál. Hindrar upplýsingar um fjármál landsins mestu bófa. Bannar lista yfir þá, sem brjóta lög á ýmsum sviðum, svo sem óskráðan ferðarekstur. Bannar birtingu mynda af þeim, sem dæla ódýrri vinnuvélaolíu á bíla. Og svo framvegis endalaust. Stofnunin er holdgervingur hins illa í samfélaginu.