Ótal embættismenn okkar eru tvenns konar aular. Annars vegar þeir, sem aldrei gera neitt og hins vegar þeir, sem bægslast um í æðibunugangi. Heilar stofnanir eru fullar af fólki, sem erlendis væri á atvinnuleysisskrá. Þar má fremstar nefna Útlendingastofnun og Umhverfisstofnun. Þar eru lagatæknar úr röðum íhaldskerlinga. Sumar stofnanir kunna bara eitt orð. Útlendingastofnun kann bara Nei. Persónuvernd kann bara Bann. Aðrar eru vinnufælnar, svo sem Landlæknir og Umhverfisstofnun. Svo eru aðrar, sem bægslast um, svo sem þær, sem eru vita friðlausar í æðibunugangi að drepa alla hvítabirni og villifé.