Faðir formanns Framsóknar á skuggalegan feril. Agnes Bragadóttir fjallaði eitt sinn um Gunnlaug M. Sigmundsson undir fyrirsögninni: “Löglegt? Siðlaust?” Fyrirsögnin lýsir manninum. Nú hefur hann kært ofurbloggarann Teit Atlason fyrir meiðyrði af tagi Agnesar. Fjölmiðlar ættu að gera fólki þann greiða að nota tækifæri málaferlanna. Þeir ættu að rifja upp gullin atriði úr grein hennar um Gunnlaug, pabba Framsóknar. Hvernig hann breyttist eins og Alí Baba í moldríkan eiganda einokunar fyrrverandi ríkisstofnunar. Eðlilegt er, að það kosti hann eitthvað að hafa stórfé af Teiti Atlasyni.