Hrunverjar eru á fullu við að endurskrifa söguna. Með stuðningi þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins. Tala eins og hrunið hafi bara verið ímyndun þeirra, sem leggja hrunverja í einelti. Fremst í endurritun sögunnar fara Björgólfur Thor á bloggsíðu, Davíð Oddsson í leiðurum, Ingibjörg Sólrún á bloggsíðu, Kristrún Heimisdóttir í ræðuhöldum, Geir H. Haarde í málsvörn, Lýður Guðmundsson í blaðagreinum. Eva Joly varaði okkur við þessu. Því miður er hálf þjóðin veik fyrir þessari samanlögðu firringu og afneitun. Segist vera tilbúin að veita hrunverjum aftur brautargengi í næstu þingkosningum.