Stjórnarskrá gerræðisríkis

Punktar

Samkvæmt uppkasti að stjórnarskrá má pynda fólk og drepa, ef það er samkvæmt alþjóðalögum. Lög mega takmarka mannréttindi. Tjáningarfrelsi má hefta. Hver má hefta? Dómara er heimilt að þvinga blaðamenn til að gefa upp heimildamenn og uppljóstrara. Allir vita, hvernig íslenzkir dómarar eru. Fundafrelsi má takmarka með lögum og ef nauðsyn ber til. Hver ákveður þá nauðsyn? Engin atlaga er gerð að forsendu hrunsins, bankaleyndinni. Leyndarhyggja gamla Íslands er áfram heimil. Til hvers var allt þetta tilstand stjórnlagaráðs? Vonbrigði mín eru slík, að ég mun greiða atkvæði gegn þessari stjórnarskrá.