Flugfélag frá helvíti

Punktar

Varla líður svo dagur, að ekki birtist fréttir af óbeit Iceland Express á viðskiptavinum. Börn eru skilin eftir á flugvöllum víðs vegar um Evrópu. Vélarnar eru yfirbókaðar reglubundið, en ekki sem undantekning. Skaðabætur eru ekki greiddar, en fólki boðnir farseðlar í sárabætur. Verður þó sumum óglatt við tilhugsunina um að fljúga aftur með flugfélagi frá helvíti. Iceland Express fer ekki eftir reglum um áætlunarflug og er oftar en ekki of seint á ferð. Hegðun Iceland Express er ekki dæmigerð fyrir lággjaldaflug. Hef oft ferðast með Ryan Air og Easy Jet og aldrei séð neitt þessu líkt.