Gerendur mótmæla afleiðingum

Punktar

Í dag mótmælir frumkvöðull hrunsins ömurlegum afleiðingum þess. Fyrrverandi þingflokksformaður og núverandi flokksformaður hefur sent öllum hrunverjum dreifibréf. Skorar á kjósendur hrunsins að mæta á Austurvöll til mótmæla afleiðingum gerða sinna. Í dag mun afneitun Sjálfstæðisflokksins ná hæstum hæðum. Kjósendur flokksins munu ekki falla á kné í dag til að biðja þjóðina afsökunar á slæmri meðferð atkvæðisréttar. Þeir munu garga hátt og kvarta yfir lélegri frammistöðu brunaliðsins við brunarústirnar. Þannig er Ísland í dag, samfélag siðblindingja, sem þola ekki, að þrengt sé að veldi þeirra.