Ófróður um mannasiði

Punktar

Hvenær sem Jón Gunnarsson hrunverji flytur sömu ræðuna á Alþingi kostar það skattgreiðendur 33.000 krónur. Málþóf stjórnarandstöðunnar á Alþingi er ekki ókeypis. Fullvinna þarf allar ræður og ótal andsvör við ræðum samherja og búa undir útgáfu. Sjaldan er sagt neitt nýtt af viti í málþófi, það snýst um endurtekningu þess, sem áður hefur verið sagt. Jón er hins vegar sá eini, sem flytur endurtekningar sínar orðrétt. Þetta er auðvitað mikilvægur þáttur í hruni þess, sem einu sinni var kallað Virðing alþingis. En Jón Gunnarsson hefur aldrei haft neina hugmynd um, hvað séu mannasiðir og hvað ekki.