Fyrsta flokks Vigdís

Punktar

Vigdís Hauksdóttir er minni máttar. Svoleiðis fólk sogar að sér “einelti”. Safnað hefur verið saman í myndskeið nokkrum gullkorna hennar í ræðustóli Alþingis. Framsóknarkonur rísa upp og mótmæla meðferðinni, kalla klippuna “einelti”. Mættum við fá meira af þessu “einelti”. Allur ferill hennar er stráður ambögum, mismælum, mótsögnum, misskilningi, orðtakavíxli, steypu, skoðanaflökti. Öllu þessu þarf að safna saman í kvikmynd í fullri lengd. Gerir okkur auðveldara að meta aðild hennar að virðingu Alþingis. Vigdís er fyrsta flokks aðferð við að fæla skynsamt fólk frá stuðningi við Framsókn.