Vinsæl hagfræðistofnun

Punktar

Létt er að fá hagfræðistofnun háskólans til að reikna arðsemi inn í Hörpu. Það er eins og að fá Capacent til að reikna Pál Magnússon hæfastan inn í Bankasýsluna. Hagfræðistofnunin varð frægust á valdaskeiði Tryggva Þórs Herbertssonar. Hann komst ætíð að hagstæðri niðurstöðu fyrir Geir H. Haarde. Stofnunin hefur viðhaldið orðsporinu eftir sjálfsagða innreið Tryggva Þórs í pólitíkina. Allar tekjur Hörpu eru reiknaðar sem hreinn gróði okkar allra. Án tillits til þeirra, sem missa af þessum sömu tekjum. Ekki er reiknað með nógu viðhaldi á ryðhrúgunni. Eðlilegt er, að hagfræðistofnunin sé vinsæl.