Burt með Grikkland

Punktar

Skásta leið Evrópu út úr blöðru-hagkerfinu er að hætta stuðningi við banka. Leyfa Grikklandi að rúlla og bönkunum, sem offjárfestu í grískum pappírum. Ýta þarf Grikklandi út úr evru-samstarfinu, þar á landið ekki heima. Ekki dugar að hafa inni aðila, sem þjáist af eindregnum brotavilja. Mistök Evrópu og Bandaríkjanna felast í þeim misskilningi, að ríki eigi að koma bönkum til bjargar. Skattgreiðendur og velferðarþegar hafa ekki ráð á, að sameiginlegur sjóður renni í hít bankastjóranna. Sú vizka þarf að komast inn fyrir þykkar og harðar höfuðskeljar þeirra, sem ráða ríkjum, sjóðum og ríkjasamböndum.