Burðardýr Flokksins

Punktar

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins jafngilda burðardýrum fíkniefnasmyglara. Hinn fjölmenni hópur, sem kýs Flokkinn, er ígildi þeirra, sem flytja eiturlyf á markað. Kjósendur Flokksins bera eins og burðardýrin fulla ábyrgð á hegðun sinni. Því bera þeir sinn hluta ábyrgðarinnar á hruninu, þótt Flokkurinn sem slíkur og valdamenn hans beri mesta. Kjósendur Flokksins geta ekki vikið sér undan ábyrgð. Þeir eru óvinir þjóðarinnar eins og bófaflokkurinn í heild. Þeir eru bara gæzlumenn sérhagsmuna, einkum kvótagreifa og auðróna. Voru það fyrir hrun, voru það í hruninu og eru það enn. Eins og hver önnur burðardýr.