Árangurslaust hef ég beðið í þrjú ár eftir, að Flokkurinn biðji mig og aðra Íslendinga afsökunar á tilveru sinni. Biðjist afsökunar á verstu ríkisstjórn Íslandssögunnar, ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Biðjist afsökunar á heimsins langversta seðlabankastjóra, Davíð Oddssyni. Þeir tveir voru sannkölluð og óvenjulega bráðdrepandi eiturblanda. Í stað þess að biðjast afsökunar rífa ráðamenn Flokksins kjaft enn þann dag í dag. Gera það í skjóli mestu fávita þjóðarinnar, þess fjórðungs, sem í könnunum segist styðja Flokkinn. Mál er, að hinni fáheyrðu ósvífni fari að linna. Ég vil fá einlæga afsökunarbeiðni.