Loksins er fólk farið að skilja það, sem ég hef tuggið upp í það mánuðum saman. Fréttir af könnunum Capacent á fylgi flokka eru rangar. Fylgi flokka er nærri helmingi minna í könnununum en gefið er upp í fréttum. Hinar háu fylgistölur fást með því að draga þá frá, sem ekki svara og eru óákveðnir. Þeir munu að meðaltali kjósa öðruvísi en meðaltal hinna, sem afstöðu taka. Þar á ofan þráspyr Capacent um fylgi Sjálfstæðisflokksins og belgir þannig út fylgi hans. Hvort tveggja lærði ég í háskóla fyrir 52 árum og þetta vita allir könnuðir. Nema Capacent. Og fjölmiðlarnir, sem lepja upp vitleysuna.